Hverju bjóst Svandís Svavarsdóttir við með sinni fyrirspurn !

Syndir heimsins

Þremur dögum eftir að Svavar Gestsson skrifaði undir Icesave var hann í viðtali við Morgunblaðið. Þar sagði Svavar að þegar ímynd Íslandi hafi hrunið haustið 2008 hafi hann langað til þess að gera gagn. Vegna þessa hafi  hann verið „svo forhertur" að taka að sér „þetta svakalega verkefni ásamt samstarfsmönnum, eitt stærsta efnahagslega verkefni sem Ísland hefur nokkurn tímann glímt við". Svavar hélt því fram að ef ekki hefði verið gengið frá samningum hefði allt innistæðutryggingakerfið í Evrópu hrunið:

„Við erum í rauninni að bera burt syndir heimsins, eins og sagt var um Jesú Krist."

Strax eftir að ljóst var að búið væri að undirrita samninga við Breta og Hollendinga kom fram gagnrýni og þá ekki síst að verið væri að skuldbinda ríkissjóð um hundruðir milljarða og það gæti stefnt fjárhagslegu sjálfstæði landsins í hættu.

Hefði ekki verið nær fyrir Svandísi að spyrja um hvað pabbi hennar hefði kostað þjóðarbúið ef " frábæru " samningar hans hefðu gengið eftir. 

Maður hefði skilið svona fyrirspurn á Alþingi ef mikill grunur hefði verið um að Forsetinn væri að misnota vald sitt en þess í stað er verið ætlast til að forsætisráðuneytið hlaupi til og fullnægi óljósum hvötum þingmannsins þegar öllum ætti að vera ljóst að þessar upplýsingar liggja fyrir þegar embættið skilar af sér ársreikningum eins og hver önnur ríkisstofnun, auk þess sem segir í svari ráðuneytisins að ALLAR upplýsingar liggi frammi á vef embættisins og í stjórnartíðindum ársins 2013.

Ekki bætti svo úr að lesa pistil Egils Helgasonar en í niðurlagi hans segir:  " Forsetar eru raunar í þeirri stöðu að þeim er gjarnan boðið. Þannig er það um Ólaf Ragnar, hann ferðast um heiminn í boði annarra, flýgur með flugfélögum, gistir á hótelum, borðar á veitingahúsum.

Ferðalög hans eru semsagt ekki vandamál í sjálfu sér - kannski frekar spurning um það sem hann er að segja á ferðum sínum. "

Hér er verið að gefa í skyn að Forsetanum sé ekki treystandi að tala máli þjóðarinnar á erlendri grundu, þetta er allt svo lágkúrulegt að maður nær ekki að skilja plottið sérstaklega í ljósi þess að SJS sem fjármálaráðherra hélt kjafti þegar kom að því bæta ímynd Íslands, það var svo sem skiljanlegt að JS forsætisráðherra þess tíma væri ekki mikið að tjá sig á enska tungu sem henni var alls ekki tamt, nei þau tvö sáu enga ástæðu til slíkra verka heldur var það Forsetinn sjálfur sem sá sig knúinn til þess og gerði það með glæsibrag, skildi vandamálið og barðist sem ljón á erlendum vettvangi að skýra út afstöðu lands og þjóðar eftir allan aumingja skap ríkisstjórnar varðandi Icesave vitleysuna.    

 

 


mbl.is 94 dagar kostuðu tæpar 8 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegt

Aðeins einn Íslendingur fann þörf fyrir að blogga um þennan hrylling.

Þarna er líf konunnar minna virði en hundstík og trúlega litið á hana sem lóðatík, fólk með svona lága lífsýn á gildi manneskjunnar sem viti borin maður. svona villimennska á ekki að vera til dag en samt les maður um svipuð tilvik á  hverjum degi. Er ekki kominn tími til að rífa mannskepnuna upp úr þessum öldudal?  


mbl.is Var fyrirskipað að nauðga henni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerði forsetinn !

-Jú, kallaði til formenn stærstu flokkana til þess að meta hug manna með hliðsjón af nýju landslagi eftir kosningarnar og hann metur það svo að Sigmundur ætti að fá fyrstur manna umboð og tækifæri til að sameina flokka og málefni með hag þjóðarinnar í huga, og ef það væri svona sjálfgefið að Framsókn og Sjálfstæðismenn ættu að fara í eina sæng saman hefði það verið afráðið strax daginn eftir. Bjarni sýnir ákveðinn dómgreindarbrest og hagar sér eins og "stóri  bróðir " sem vill hafa vit fyrir þeim yngri í stað þess að bíða rólegur eftir því að Sigmundur stokki sín spil, ræði við menn og meti hvar styrkur heildarinnar liggur.

Ef Sjálfstæðisflokkurinn fer á límingunum við það það eitt að Framsóknarflokkurinn sé að meta stöðuna og kemur fram með hroka og yfirlýsingar um að Framsókn sé af gömlum vana opinn í báða enda ( hvernig getur miðjuflokkur verið öðruvísi ) segir það bara eitt að kannski ættu þeir að hvíla sig enn eitt kjörtímabilið því lítið virðast þeir ætla að breytast til betrunar, það er ekki nóg að tala um að bæta og vanda vinnubrögð stjórnmálamanna það þarf líka að sýna það í verki. Það eru mörg erfið mál framundan hjá næstu stjórn og það er einsýnt að vanda þarf til verka og fá öll sjónarmið upp á borðið og ef ég stæði í sporum Sigmundar og hugnaðist að fara í samstarf við Sjálfstæðismenn, þá myndi ég að sjálfsögðu gera eins, viða að mér tilboðum annara til þess að fá ákveðna yfirsýn áður en ég settist niður með Bjarna annað væri óeðlilegt.      


mbl.is Framsókn ekki með „einkaleyfi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugleiðing í aðdraganda kosninga

Ég er bara venjulegur maður með svipaðar væntingar og þrár og þorri landsmanna sem lítur til næstu fjögurra ára með það í huga að leggja sitt vægi á vogarskálarnar með þá von að „atkvæði" skipti máli og þá fel ég því þeim stað þar sem ég tel það gagnast mest ekki eingöngu fyrir mig heldur ekki síst með væntumþykju fyrir landi og þjóð. Ekki vil ég sóa atkvæði mínu með að kjósa ekki eða skila auðu, svo hvað skyldi þá vera í boði fyrir mig þennan venjulega mann.

Björt Framtíð (A) = framlenging af Samfylkingu með blöndu af Besta flokknum ( klofningsbrot sem mér hugnast ekki.

Lýðræðisvaktin (L) =  klofningsbrot frá Samfylkingu og með Þorvald Gylfason í fararbroddi, eitthvað sem mér hugnast ekki.

Samfylking (S) = rörsýni á að innganga í ESB leysi allan vanda, deyjandi afl í bili enda helstu þingmenn og ráðherrar í felum.

Vinstri grænir (V) = sama tilvistarkreppan finnst mér og klofinn í Alþýðufylkingu( R) og Regnbogann (J)

Dögun (T)  ekki vænlegt þegar samstarfið byrjar á því að fólk fer að rífast og fara í fýlu og finnur sér síðan stað í öðru flokkabroti, Verð þó að taka fram að Andrea Jónsdóttir er skelegg og fylgin sér en þetta er ekki persónukjör.

Píratar (Þ) ungt fólk með framtíðina fyrir sér með áherslu á internetið og opið bókhald, gætu verið góð með en hrösun í frambjóðanda vali gæti haft áhrif á fylgið, ekki nógu sannfærandi fyrir mig, kannski er ég of gamall.

Þá eru bara tveir flokkar eftir því ég nenni ekki að hafa fyrir því að telja upp alla þá örflokka sem eftir sitja, ekki það að þeir séu slæmir heldur það að fylgið mælist lítið og einhverstaðar verður að setja mörk en þarna er fullt af góðu fólki sem örugglega á eftir að láta að sér kveða í framtíðinni og það verður gaman að sjá hve margir þessara örflokka lifa eftir kosningar og þá koma þeir tvíefldir til leiks að fjórum árum liðnum.

Sjálfstæðisflokkur (D) þetta er sá flokkur sem ég hef alltaf kosið og verið stoltur af sem kjölfestu í Íslenskum stjórnmálum en nú er draumurinn búinn, innbyrðis átök skekja flokkin til falls þannig að hann þarf að fara í naflaskoðun og hreinsun, þetta er í fyrsta skipti sem ég kýs ekki XD en ég græt það ekki í þetta skiptið en vona að hann finni sig aftur þótt síðar verði því þarna er margt gott fólk.

Framsóknarflokkur (B) þetta er sá flokkur sem mér hugnast best og afhverju skyldi það vera. Þau hafa farið í gagngera endurskoðun, brotnar hafa verið burt morknaðar og fúnar undirstöður og steypt í mót málefnalegar stefnur sem gera Framsókn einn eftirsóttasta valkost síðari ára. Þau standa sterk þrátt fyrir mjög ómálefnalega og undirbeltis gagnrýni og sýndu það svo sannarlega í Ice save málinu að sameinuð eigum við að vera gagnvart öðrum þjóðum en ekki sundruð enda varð það svo að Ísland varð ekki bundið í skulda klafa ósanngjarna vaxta um ókominn ár sem gerið það dálítið klént að þeir sem hrópa hæst í gagnrýni á Framsókn fyrir óábyrg loforð fannst ekkert að því að borga Bretum og Hollendingum marga marga tugi milljarða í vexti og var það ekki síst sumir sem vildu  ekki aðeins borga þann 3. og síðasta heldur líka þann fyrsta og annan og ef ekki vegna lagalegrar skyldu þá ætti  það vera á siðferðislegum grunni. 

En auðvitað er það svo að fólk finnur sér farveg fyrir sínar hugsjónir og ekkert nema gott um það að segja en litlu flokkarnir eru eins og lítil börn sem þurfa að vaxa úr grasi, þau þurfa umhyggju og næringu og það gerist ekki á nokkrum mánuðum, það hefur enginn gott af því að fullorðnast of fljótt.Sumir eru að hafa áhyggjur af  því sem þeir kalla flokkshollustu þeirra sem styðja stærri flokkana og ýja að því með öllum ráðum að fólk sé blint ef það sér ekki sama sannleik og þeir en er ekki einfaldlega auðveldara að sjá flís í augum náungans frekar en bjálkann í sínum eigin og Framsókn má eiga það að þau detta ekki í sömu gryfju og margir aðrir að fara í skítkast og drullumak til að ryðja skoðunum sínum veginn.  Okkar  kertaljós verður ekkert bjartara við það þótt við slökkvum annara manna ljós og það ber að hafa í huga í kosningabaráttunni  sem og í lífinu öllu. Við erum einfaldlega öll meðbræður og systur hvort sem okkur líkar það betur eða ver.

Það skal tekið fram að þetta eru ekki leigupennaskrif heldur eingöngu verið að setja fram hugleiðingar alþýðumannsins sem búinn er að taka sína ákvörðun með þá sýn sem hann hefur á þjóðmálum í dag og á engan hátt verið að gera lítið úr skoðunum annara, þeir mega hafa hafa þær fyrir mér en kannski eru einhverjir sem eru sammála mínum skoðunum að einhverju leiti og þá er það bara gott og vonandi léttir þessi pistill þeim ákvörðunartökuna þegar kemur að því að fylgja sinni sannfæringu í kjörklefanum.    

Friðrik Már Bergsveinsson


Stærsta málið framundan " Réttindamál heimilana "

Frosti stendur sig vel og virðist vera ferskur andblær inn í Framsóknarflokkinn.

Og Framsóknarflokkurinn má eiga það að þau hafa staðið föst fyrir í einu stærsta réttindamáli þjóðarinnar og trúlega er þetta stærsti sigurinn fyrir þau og kemur sér vel í aðdraganda kosninga.

Kosningar næstu koma til með að snúast um heimilin í landinu og atvinnu uppbyggingu, ef ekki getum við alveg eins beðið frændur okkar Norðmenn að taka við okkur aftur.


mbl.is Eftir Icesave er komið að heimilunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott skref hjá Vigdísi

Hér er á ferðinni heiðarleg og hreinskilin persóna sem á fullt erindi á þingi og mættu margir taka sér hana til fyrirmyndar,þetta er ekki öfundsvert hlutverk að vera sterkur leiðtogi síns lista en Framsókn mun eflast í Reykjavík í komandi kosningum með tilstilli Vigdísar. Verðugur fulltrúi þeirra sem vilja efla sjálfstæði Íslands.
mbl.is Lýsti yfir framboði á fundinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Las hún pistilinn ?

Davíð Þór fer að mínu mati margfaldlega yfir strikið í grein sinni um forsetann og greinilegt að að þar er ekkert heilagt í þeim efnum hjá honum að kasta skít sem mest hann má til þess eins að gera forsetann tortryggilegan daginn fyrir kosningar en mér er til efs um að nokkur heibrigð sál hafi ekki séð í gegnum þetta plott sem reyndar lýsir sálarástandi Davíðs Þórs á frekar átakanlegan hátt og miðað við orðin sem eru notuð er spurning hvort Davíð Þór eigi yfir höfuð heima í þjóðkirkjunni sem kirkjunnar þjónn.

Hann reyndar afsakar hálfpartinn gýfuryrðin og hvetur fólk að líta fram hjá þeim sem er reyndar gömul brella, orðin eru sögð og ekkert tekur þau til baka en það að svona hæfileikaríkur maður á ritvellinum leyfi sér að nota slíkt orðafæri er ofar mínum skilningi því hann hefði getað komið allri sinni sálarangist á framfæri á hóflegri hátt.

En hluturinn er gjörður og fátt annað fyrir Davíð þór en að taka því sem að höndum ber og auðvitað ber honum að vera ábyrgur gjörða sinna eins og aðrir menn og fyrst kirkjan tekur ekki á málum sem hún þó hefði átt að gera með áminningu til síns þjóns að hann gæti siðvandara orðavals og hafi í huga að alltaf skal höfð aðgát í nærveru sálar og kannski sérstaklega þegar um er að ræða svona obinbert skítkast, sem stór hluti þjóðarinnar les, í garð forsetans sem er jú verndari þjóðkirkjunnar og þar með yfirboðari Davíðs Þórs.

Vonandi höfðar Guðni Ágústsson gegn Davíð Þór, þó ekki væri nema til þess að fá úr því skorið hversu langt menn mega ganga í svona obinberu skítkasti og ef Davíð Þór yrði á einhvern hátt sakfelldur þá væri eftirleikurinn auðveldur fyrir nýja biskupinn sem reyndar kom aðeins á óvart með hlutleysi sínu eins og hún hefði ekki lesið téðan pistil.

En ég segi bara ef Davíð þór er ímynd hins Nýja Íslands þá mega Íslendingar vara sig og biðja algóðan Guð um vernd.


mbl.is Skilur ekki afstöðu Guðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítkast af verstu gerð


Davíð Þór fer að mínu mati margfaldlega yfir strikið í grein sinni um forsetann og greinilegt að að þar er ekkert heilagt í þeim efnum hjá honum að kasta skít sem mest hann má til þess eins að gera forsetann tortryggilegan daginn fyrir kosningar en mér er til efs um að nokkur heibrigð sál hafi ekki séð í gegnum þetta plott sem reyndar lýsir sálarástandi Davíðs Þórs á frekar átakanlegan hátt og miðað við orðin sem eru notuð er spurning hvort Davíð Þór eigi yfir höfuð heima í þjóðkirkjunni sem kirkjunnar þjónn.

Hann reyndar afsakar hálfpartinn gýfuryrðin og hvetur fólk að líta fram hjá þeim sem er reyndar gömul brella, orðin eru sögð og ekkert tekur þau til baka en það að svona hæfileikaríkur maður á ritvellinum leyfi sér að nota slíkt orðafæri er ofar mínum skilningi því hann hefði getað komið allri sinni sálarangist á framfæri á hóflegri hátt.

En hluturinn er gjörður og fátt annað fyrir Davíð þór en að taka því sem að höndum ber og auðvitað ber honum að vera ábyrgur gjörða sinna eins og aðrir menn og fyrst kirkjan tekur ekki á málum sem hún þó hefði átt að gera með áminningu til síns þjóns að hann gæti siðvandara orðavals og hafi í huga að alltaf skal höfð aðgát í nærveru sálar og kannski sérstaklega þegar um er að ræða svona obinbert skítkast, sem stór hluti þjóðarinnar les, í garð forsetans sem er jú verndari þjóðkirkjunnar og þar með yfirboðari Davíðs Þórs.

Vonandi höfðar Guðni Ágústsson gegn Davíð Þór, þó ekki væri nema til þess að fá úr því skorið hversu langt menn mega ganga í svona obinberu skítkasti og ef Davíð Þór yrði á einhvern hátt sakfelldur þá væri eftirleikurinn auðveldur fyrir nýja biskupinn sem reyndar kom aðeins á óvart með hlutleysi sínu eins og hún hefði ekki lesið téðan pistil.

En ég segi bara ef Davíð þór er ímynd hins Nýja Íslands þá mega Íslendingar vara sig og biðja algóðan Guð um vernd.


mbl.is Davíð svarar Guðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða bull er þetta !

Auðvitað eiga menn og stökkva til og útbúa sérstaka kjörseðla fyrir blinda og þótt eitthvað kosti að útbúa stansa með blindraletri þá væri hægt að einfalda hlutina með tölustöfum eða bókstöfum með blindraletri sem hver og einn frambjóðandi hefði merktann með sínu nafni þá mætti nota stansana aftur og aftur.

Því þetta er eitthvað sem hver og einn þjóðfélagsþegn á rétt á að eiga með sjálfum sér með sem minnstri utanaðkomandi hjálp.

Það eru rétt um 1500 einstaklinga sem þyrftu að nýta sér þetta fyrirkomulag og kostnaður er ekki sá að menn þurfi að missa sig og kannski ekki síst þegar frambjóðendum verður tíðrætt um mannréttindi þá verður þetta sárlega neyðarlegt .

Því er hér með skorað á stjórnvöld félagshyggju og réttlætis að kippa þessu í liðinn því þessu er hægt að bjarga með stuttum fyrirvara.


mbl.is Kröfu Blindrafélagsins hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var við öðru að búast !

Hreinsanir byrjaðar í VG.

Fyrst fara Atli og Lilja, það er með ólíkindum hvað heildarstefnan ætlar að breytast. Valdasýki er eins og önnur græðgi og dregur dilk á eftir sér.

Virkilega ílla farið með þessa góðu og heilsteyptu konu sem Guðfríður Lilja er. nú hlýtur Ásmundur að fara að ókyrrast og kjósendum VG að fækka enn meir.


mbl.is Ekki brot á fæðingaorlofslögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband