Dýrmætast er frelsið

Þeir sem vilja leyfa búrkur og andlitsslæður hefðu gott að lesa þessa bók eftir norsku blaða og mannréttinda frömuðinn Hege Storhaug en hún hefur skrifað bækur sem mikla athygli hafa vakið. Þar á meðal bækur um innflytjendamál sem hún hefur sérþekkingu á. Dýrmætast er frelsið var ein af metsölubókum ársins í Noregi 2007.

SKYLDULESNING FYRIR ALLA SEM LÁTA SÉR ANNT UM FRAMTÍÐ ÍSLENSKS SAMFÉLAGS.

Ásýnd Evrópu er óðum að breytast. Fjöldi innflytjenda hefur streymt til álfunnar á undanförnum áratugum. Ólíkir menningarheimar mætast. Hefðbundin vestræn gildi eiga víða undir högg að sækja. Jafnvel á Norðurlöndum blasir við alvarlegur vandi. Í mörgum tilvikum hefur aðlögun misheppnast: gettómyndun, aukið trúarofstæki, kynjamisrétti, ofbeldi gegn konum og börnum, kynfæralimlestingar, heiðursmorð og hjónabönd þar sem ungt fólk er þvingað til að eiga maka sem eru sóttir til upprunalandsins. Allt eru þetta vandamál sem nágrannalönd okkar glíma nú við í síauknum mæli og afleiðingar innflytjendastefnu undanfarinna áratuga. Í þessari bók er einkum fjallað um þann vanda sem frændur okkar Norðmenn standa frammi fyrir. Jafnframt er farið yfir sviðið í öðrum Vestur-Evrópulöndum. Gríðarmikil heimildavinna liggur að baki bókinni. Henni er ekki síst ætlað að vinna bug á fordómum sem koma í veg fyrir opna og gagnrýna umræðu um innflytjendamál. Stundum er sagt að þróunin á Íslandi sé a.m.k. tíu árum á eftir því sem gerist í nágrannalöndunum. Margt bendir til að þessi bók lýsi vandamálum sem við Íslendingar munum þurfa að takast á við fyrr en síðar.

(tekið af síðu þýðanda bókarinnar Magnúsar Þórs Hafsteinssonar)

Það má rekja eins og rauðan þráð við lestur þessarar bókar hve slæðan og búrkan spilar óhugnalegan þátt í því að kúga konur og halda þeim einangruðum frá samfélaginu og þetta á ekkert skylt við trú heldur Sharía lög Íslamista sem eru frekar pólitík en trú.


mbl.is Vill ekki banna búrkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband